Eiríkur Hauksson

Gaggó-Vest Lyrics

Gaggó-Vest video

Votes:
0
Wrong lyrics?

Eiríkur Hauksson - Gaggó-Vest lyrics

Bjallan glymur gróft er hennar mál.
Gaggó-Vest hefur enga tildursál.
Eins og sést, eins og sést, eins og sést
þá er ég alinn upp í Gaggó-Vest.

Kennarahræin eru kuldaleg í framan
kannski þykir þeim hreint ekki gaman
að vakna í bítið í vetrartíð
til að vitka draugfúlan æskulíð.

Bekkjastofur fyllast af bleikum fésum
Finnum og Jónum og Siggum og Drésum
handalögmál og hefðbundin læti
hundskist þið til að fá ykkur sæti.

Segðu mér hvaða ár hengdu þeir Krist?
Í hvaða bandi spilar Frans þessi Liszt?
Einn týndi bókinni annar gleymdi að lesa.
Af hverju kallar hann okkur lúsablesa?

Eins og sést, eins og sést, eins og sést
þá er ég alinn upp í Gaggó-Vest.
Gaggó-Vest, Gaggó-Vest,
gaf mér allt sem reyndist svo best.

Nú er kennarafundur um komandi fár
þeir kalla faraldurinn bítla-hár.
Frá Lifrapolli ljót berast org,
lýðurinn dansar um stræti og torg.

Var ekki nóg að fá tjútt og tvist?
Tæpast flokkast þessi öskur sem list.
Drottinn minn er dansæfing í kvöld?
Djöfullinn sjálfur mun taka hér völd.

Allt í einu er Andrés littli orðinn stór
það gera hinri alræmdu bítla-skór.
Hér verður rokkað og rólað um allt
það rennur vatn undir hörund vort kalt. Eiríkur Hauksson - Gaggó-Vest - http://motolyrics.com/eirikur-hauksson/gaggo-vest-lyrics.html

Eins og sést, eins og sést, eins og sést
þá er ég alinn upp í Gaggó-Vest.
Gaggó-Vest, Gaggó-Vest,
gaf mér allt sem reyndist svo best.

Komdu upp að töflunni hvað sem þú heitir
þú minnir á púk'a- og öfgasveitir.
Af hverju er haus á herðum þínum?
Taktu nú vel eftir orðum mínum:
Þú verður aldrei annað en rukkari, róni
eða þaðan af verra,

rugguhestur og uxakerra.

Eins og sést, eins og sést, eins og sést
þá er ég alinn upp í Gaggó-Vest.
Gaggó-Vest, Gaggó-Vest,
gaf mér allt sem reyndist svo best.

Ó kennari minn, ég kveð ég þig nú
með kurt og pí og segi I love you.
Ich Liebe dich, Jet aime, ég elska þig.
Er nokkur von til þess að þú elskir mig?

Því eins og sést, eins og sést, eins og sést
þá er ég alinn upp í Gaggó-Vest.
Gaggó-Vest, Gaggó-Vest,
gaf mér allt sem reyndist svo best.

Því eins og sést, eins og sést, eins og sést
þá er ég alinn upp í Gaggó-Vest.
Gaggó-Vest, Gaggó-Vest,
gaf mér allt sem reyndist svo best.

Því eins og sést, eins og sést, eins og sést
þá er ég alinn upp í Gaggó-Vest.
Gaggó-Vest, Gaggó-Vest,
gaf mér allt sem reyndist svo best.

Write a comment

What do you think about song "Gaggó-Vest"? Let us know in the comments below!

Recommended songs